3.flokkur tapaði í lélegum og miklum sirkusleik gegn Stjörnunni í gær, 28-26. Selfoss var alltaf yfir sem dæmi 10-5, 23-18 en þá gerðist margt sem ekkert á skylt við handbolta. Síðuritari var á leiknum að þessu sinni og vakti það mikla athygli framkoma áhorfenda frá Stjörnunni sem hæddust mjög að Selfyssingum og töluðu niðrandi um handboltann á Selfossi sem og bæjarfélagið. Síðuritari vill ekki tjá sig náið um dómgæsluna en telur það nægja fólki að benda á að fyrir þremur mánuðun vann Selfoss sama lið með 22 en tapar nú með tveimur.
Í lið Selfoss vantaði Andra Halls, Tona, Sigga Má, Sverri og Þór sem er farinn til Chile, munar um minna um þessa menn. Því ekki var mikið um varamenn. Þá var Örn fjarri sínu besta en hann séri sig á ökkla fyrir stuttu. Arnar þjálfari vildi lítið tjá sig um þennan leik, frammistöðu liðsins og alls ekki um dómarana. Hann sagði að þessi síða væri vöktuð og því væri best að vera ekkert að tjá sig um þessa hluti. Hann sagði að lífið héldi áfram og næst væri að undirbúa sig fyrir komandi leiki.
Mörk
Árni 10
Steini 5
Sissi 3
Örn 3
Andri Már 2
Matti 2
Trausti 1
Helgi varði 25 skot og 2 vítaköst
