Það var ótrúlegt að mæta í húsið 40 mín. fyrir leik og húsið þegar farið að fyllast. Mörg hundruð manns voru viðstaddir upphitun liðanna og byrjaðir að styðja sitt lið með söngvum og trommum. Þetta minnti óneytanlega á stemninguna sem var til staðar hér á Selfossi á árunum 1991 - 1994 og áhorfendur urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum með það sem fylgdi í kjöfarið.
Leikurinn byrjaði jafn þar sem liðin skiptust á að skora og jafnvægið hélst þar til 20 mín. voru búnar af leiknum en þá var staðan 7-9 fyrir gestina. Þá hrökk allt í baklás í sókninni hjá Selfoss og mikið var um tapaða bolta og mistök sem gestirnir nýttu sér til þess að skora auðveld mörk úr hraðaupphlaupum. Tveimur mínútum síðar var staðan orðin 7-12. Eru strákarnir að fara á taugum bergmálaði í höfðinu á mörgum stuðningsmanninum á þeim tíma. En þá kom vendipunkturinn í leiknum. Birkir kom í markið og Atli kom inná aftur eftir að hafa verið tekinn út af eftir 15 mín. leik. Birkir lokaði markinu og Atli var miklu grimmari eftir kælinguna greinilega ósáttur við sína spilamennsku í byrjun. Hann skoraði hvert markið á fætur öðru á meðan vörnin hrökk í gang samhliða góðri markvörslu. Þegar 6 sekúndur voru eftir af fyrri hálfleik varði Birkir vítakast og Atli náði frákastinu og brunaði upp allan völlinn og jafnaði leikinn í 14-14 um leið og hálfleikurinn rann út. Gríðarlegur fögnuður braust út í liði heimamanna sem fundu það að ísinn hafði verið brotinn. Nú varð ekki aftur snúið.
Síðari hálfleikur byrjaði þó á því að gestirnir komust í 14-16 en svo var bara sagt hingað og ekki lengra. Selfoss breytti stöðunni í 21-18 um miðjan seinni hálfleikinn. Sóknarleikur gestanna var orðinn ómarkviss enda gekk lítið hjá þeim að opna vörnina og það sem fór í gegn tók Birkir. Þegar um 9 mín. voru eftir gat Selfoss náð 5 marka forystu og klárað leikinn með því að komast í 25-21 en skotið fór í tréverkið. Gestirnir náðu þá í staðinn að minnka muninn í 24-22 og aftur var farið að fara um stúkuna. Selfoss var þá búið að skjóta 8 sinnum í stög eða slá oft úr góðum færum "nei, ætla menn að klikka á þessu" tilfinningin var komin aftur. En það kom ekki til greina og Selfoss náði að klára leikinn með mjög góðum varnarleik á síðustu 2 mín. leiksins. Sigurinn var svo endanlega tryggður þegar 45 sek. voru eftir af leiknum. Einlægur og mikil fögnuður braust út í húsinu. Selfoss var orðinn Deildarmeistari og komnir í úrvalsdeildina eftir langa bið.. loksins loksins loksins
Birkir var valinn maður leiksins en vörnin stóð sig líka frábærlega. Ómar og Baldur bundu vörnina rosalega saman í seinni hálfleik og þá átti Mikalonis ótrúlega innkomu í blálokin þegar Ómar meiddist. Hinn 35 ára gamli leikmaður sem hefur spilað samfleytt í 10 ár með liðinu og haldið tryggð við það í gegnum erfiða tíma kórónaði frábært tímabil á þessum 5 mín. Þá áttu Sjóli og Árni Steinn mjög góða innkomu í leikinn en Selfoss notaði alla 14 leikmennina sína í leiknum sem er til marks um bæði mikla breidd og það traust sem þjálfarinn hefur á öllum leikmönnum liðsins sama hversu stór leikurinn er. Þegar upp er staðið var þetta sannkallaður sigur liðsheildarinnar.
Markaskorarar Selfoss:
Atli Kristinsson 9
Ragnar Jóhannsson 6
Ívar Grétarsson 3
Árni Steinn Steinþórsson 3
Hörður Gunnar Bjarnarson 3
Helgi Héðinsson 1
Baldur Þór Elíasson 1
Hörður (Sjóli) Másson 1
Sebastian Alexandersson varði 6 skot og fékk á sig 12 mörk (33%)
Birkir Fannar Bragason varði 16/1 skot og fékk á sig 12 mörk (57%)
Við náðum tali af Sebastian í dag og spurðum hann um leikinn í gær.
Til hamingju með að vera kominn í Úrvalsdeildina. Hvernig tilfinning er það ?
"Já takk og sömuleiðis. Árangurinn er Selfyssinga allra. Tilfinningin er að sjálfsögðu frábær. Við erum búnir að vinna að þessu í mörg ár og sýna gríðarlega þolinmæði í þessari uppbyggingu. Við höfum verið að fikra okkur upp um eitt sæti á hverju ári og 1 sætið núna var bara eðlilegt framhald fyrir okkur á þeirri leið. Við ákváðum það 2006 samhliða stofnun akademíunnar að gera 5 ára áætlun sem átti að gera ráð fyrir því að við myndum komst í úrvalsdeild 2010 þannig að við erum á áætlun."
Hversu mikinn þátt telurðu að akademían eigi í þessum árangri ?
"Stóran, það er ljóst enda eru bara uppaldir Selfyssingar í liðinu og langflestir þeirra búnir að fara í gegnum það prógram. En það má ekki gleyma því að þeir koma líka úr barna- og unglingastarfinu okkar sem Einar Guðmundsson hefur stjórnað frábærlega. Þá erum við líka svo heppnir að vera með mjög hæfa þjálfara í akademíunni sem hafa tekið við þeim efnivið sem kemur úr því starfi og farið með hann uppá næsta þrep. Ekki bara handboltalega heldur líka líkamlega og andlega. Loks má ekki gleyma öllu því frábæra fólki sem starfar í kringum félagið, stjórnarfólki og öðrum, sem skapa skapa þá frábæru umgjörð sem komin er í kringum liðið. Þá má ekki gleyma galdramanninum Jóni Birgi (Jónda) sjúkraþjálfara sem gerir kraftaverk í því að gera menn leikhæfa. Við eigum þennan árangur öll og allir eiga sinn þátt í þessum árangri."
Hafðirðu aldrei áhyggjur í leiknum í gær um að að þið mynduð klúðra þessu eins og sagt er ?
"Nei í raun og veru ekki. Við brenndum okkur illa á svona leikjum í fyrra og núna vissum við hvað við gerðum rangt þá og hvað þyrfti að gera núna. Þetta snýst allt um að trúa á leikskipulagið og þá vinnu sem búið er að leggja á sig á tímabilinu. Um leið og liðið hættir að spila það sem það kann þá er það í vandræðum. Besta leiðin er að standast freistinguna um að breyta til og halda sig fast við það lagt er upp með. Ég hafði 100% traust á strákunum fyrir þetta tímabil og þá sérstakelga þegar þeir taka undirbúninginn alvarlega eins og fyrir þennan leik."
Að lokum þá verð ég að spyrja. Hvernig stóð á því að Birkir byrjaði út af. Hefði hann ekki átt að byrja inná ?
"Þetta var fyrirfram ákveðið. Við ákváðum það í sameiningu að ég myndi byrja til taka mestu ábyrgðina af honum og reyna að flækjast eitthvað fyrir. Hann átti svo að koma inná laus við alla pressu og klára verkefnið. Það stóð aldrei til að ég myndi spila meira en 15-20 mín. Það er ekki hægt annað en að segja að þessi áætlun hafi gengið algjörlega upp."
Að lokum þá vildi Sebastian koma á framfæri gríðarlegu þakklæti og ánægju fyrir hönd liðsins til stuðningsmanna liðsins fyrir stuðninginn í vetur og þá sérstaklega á leiknum í gær. Takk fyrir sömuleiðis segjum við bara.
Áfram Selfoss
