Íþróttaskóli fimleikadeildar Selfoss hefst á laugardaginn 4. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2006-2008. Um er að ræða 10 skipta námskeið og eru yngri börnin, þ.e. börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007, kl. 10:00-10:50, en eldri börnin, þ.e. börn sem eru fædd fyrri hluta 2007 og 2006, í seinni tímanum sem er kl. 11:00-11:50.
Seinni skráningardagurinn í fimleikana og Parkour fyrir haustið er fimmtudagurinn 19. ágúst. Skráning fer fram kl. 17-20 í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Mikilvægt er að forráðamaður mæti með til skráningar. Einnig er hægt að staðfesta áframhaldandi iðkun á netfangið olgu@simnet.is og munið að taka fram greiðslufyrirkomulag. Starfið hefst svo formlega mánudaginn 30.ágúst.
Síðasta námskeið sumarsins hjá Fimleikadeildinni hefst mánudaginn 9. ágúst og stendur til 20. ágúst. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2004-2001 og er alla virka daga kl. 13:00-15:00. Kennarar eru Linda Ósk Þorvaldsdóttir og Sigríður Ósk Harðardóttir ásamt aðstoðarþjálfurum. Skráning fer fram á olgu@simnet.is
