Stelpurnar í 7. flokki kvenna gerðu sér lítið fyrir og unnu árlegt Fossvogsmót sem haldið er af HK í Kópavogi. Stelpurnar sem eru 8 ára gamlar hafa margar æft knattspyrnu lengi og sýna orðið flotta takta og gott spil og því var sigurinn sanngjarnt hjá þessum ungu knattpyrnukonum. Yfir 20 stelpur hafa verið að æfa fótbolta í sumar.
Stelpurnar í 6. flokki B náðu þeim fína árangri á dögunum að lenda í öðru sæti á Íslandsmótinu. Þær byrjuðu á því að vinna sinn riðill sem spilaður var fyrr í sumar. Eftir það lá leiðin í úrslit og þar gekk þeim mjög vel. Þær unnu alla sína leiki nema sjálfan úrslitaleikinn, en þá spiluðu þær við stelpurnar í Grindavík og töpuðu naumlega 2-1 í skemmtilegum leik. Flottur árangur hjá þessum efnilegu stelpum sem allar voru á yngra ári í 6. flokki í sumar.
Flokkaskipti hafa átt sér stað hjá knattspyrnudeild þar sem eldri árgangar færast upp um flokk. Æfingar hefjast af fullum krafti mánudaginn 6. september. Hér að neðan eru upplýsingar um þjálfara og æfingatíma allra yngri flokka.
Strákarnir í b-liði 6. flokks Selfoss tóku þátt í úrslitakeppni Pollamóts KSÍ í Reykjaneshölinni í Keflavík sunnudaginn 22. ágúst s.l. Í riðlakeppninni spiluðu þeir þrjá leiki. Þeir byrjuðu á því að gera 0:0 jafntefli við Breiðablik 3, en unnu svo Reyni S. 11:0 og Fjölni 5:0. Í úrslitaleiknum léku þeir við Snæfellsnes og unnu 4:2. Þar með urðu þeir Íslandsmeistarar SV (Suðvesturland) í flokki b-liða.
Þá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli liði Selfoss upp í efstu deild í fyrra en hvarf síðan á braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða kl. 17.30 munu þjálfarar liðanna, þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson, ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.
Á mánudag mæta Selfyssingar í Laugardalinn og þar taka á móti þeim, á sjálfum þjóðarleikvanginum,Framarar. Fram tapaði fyrir KR í síðustu umferð á meðan Selfyssingar kenndu landsmönnum hvernig á að vígja nýja velli og unnu Keflavík 3-2 eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik. Eftir þennan sigur eru Selfyssingar í 11. sæti Pepsideildar með 14 stig, en Fram er í því 8. með 20 stig. Heimasíða Selfoss vill sérstaklega benda á breyttan leiktíma vegna birtuskilyrða á norðurhveli jarðar, en nú og í næstu leikjum munu leikir hefjast kl 18.00.
